Kayakklubburinn ...magnaðir markeipar
  • Forsíða
    • Fréttayfirlit
      • Námskeið
    • Korkurinn
    • Sölusíðan
    • Innskráning
  • Klúbburinn
    • Algengar spurningar
    • Fyrirspurn (email)
    • Til Nýliða
    • Stjórn og nefndir
    • Öryggismál
      • Öryggisstefna félagsróðra
      • Öryggisstefna klúbbferða - sjókayak
      • Erfiðleikastig sjókayakferða
    • Lög Kayakklúbbsins
    • Afslættir félagsmanna
    • Skráning í klúbbinn
    • Róðrarstjórar félagsróðra
    • Skjalasafn
    • Aðstaðan
      • Lykla og aðgengismál Geldinganesi
      • Umgengnireglur aðstöðu- og búnaðar
      • Reglur bátageymslna Kayaklúbbsins í Geldinganesi
  • Dagskrá
    • Ferðadagskrá
    • Keppnisdagskrá
    • Félagsróðrar
    • Sundlaugaræfing
    • Námskeið
  • Keppnir
    • Reykjavíkurbikar
    • Hallarbikarinn
    • Sprettróður
    • 10km keppnin
    • Haustródeo
    • Tungufljótskappróðri
    • Kayakfærni
    • Bessastaðarbikar
    • Hvammsvíkurmaraþon
    • Elliðaárródeó
    • Hálfmaraþon
  • Fróðleikur
    • Sögur
    • Fræðsluefni
    • Vefkrækjur
    • Myndasíða
    • Leiðsögn um ár - kort
    • Ferðaskýrslu kort
    • Slóðir (GPS-Wikiloc)
  • English
    • Club Registration
    • River Guide - map
    • Paddling along the South Coast of Iceland
    • Guidelines for paddling in Iceland (en)
    • Safety-policy for the club´s joint paddling activities

Korkurinn

    • Mýrarnar, laugardaginn 5. júlí...
    • 01 júl 2025 20:48

Fleiri umræður »

Tillaga að lagabreytingu

Nánar
Valgeir Eliasson
Tilkynningar
febrúar 12 2023
Skoðað: 1263
  •  Prentvæn útgáfa 
  • Tölvupóstfang

 

Tillaga um lagabreytingu á 7. grein laga

Lögð fram á aðalfundi klúbbsins 23. febrúar 2023

 

Ástæða lagabreytingar tillögunnar er að festa í sessi og færa í lög það ferli sem hefur verið viðhaft árum saman að vera með skoðunarmann ársreikninga klúbbsins.

Algengt er að í félögum að aðalfundur kjósi félagslega skoðunarmenn ársreikninga. Hingað til hefur það ekki verið gert hjá klúbbnum heldur hefur verið fenginn félagi, af stjórn á hverjum tíma, til að yfirfara ársreikning klúbbsins.

Til styðja og styrkja hlutverk skoðunarmanns ársreikninga er það tillaga mín að bætt verði inn tölulið í 7. grein þar sem kemur fram að aðalfundur kýs skoðunarmann ársreikninga.

Laga breytingin er merkt með rauðum lit hér að neðan.

   

Valgeir Elíasson

Formaður Kayaksklúbbsins

 

7. grein

Dagskrá aðalfundar:

1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.

2. Skýrsla stjórnar lögð fram.

3. Skýrslur nefnda lagðar fram.

4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og útskýrðir.

5. Umræða um skýrslu stjórnar, nefnda og reikninga.

6. Reikningar bornir upp til samþykktar.

7. Lagðar fram tillögur að lagabreytingum og bornar undir atkvæði.

8. Önnur málefni sem borist hafa til stjórnar lögð fram og borin undir atkvæði.

9. Kosning formanns og fjögurra meðstjórnenda sem skipta með sér verkum í samræmi við 9. grein.

10. Kosning skoðunarmanns ársreikninga.

11. Ákvörðun félagsgjalda.

12. Önnur mál.

13. Fundargerð.

14. Fundarslit.

Kosning stjórnar og aðrar atkvæðagreiðslur

Kosningu á aðalfundi skal framkvæma með handauppréttingu en sé þess óskað sérstaklega, skal haldin leynileg atkvæðagreiðsla. Lögum félagsins verður ekki breytt nema á aðalfundi og þá með 2/3 hlutum atkvæða. Í öðrum kosningum á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti. Aðalfundur getur með 2/3 atkvæða viðstaddra, tekið fyrir mál utan dagskrár aðalfundar, þó ekki lagabreytingar.

Aðalfundur 2023

Nánar
Valgeir Eliasson
Frettir
febrúar 01 2023
Skoðað: 1671
  •  Prentvæn útgáfa 
  • Tölvupóstfang

Aðalfundur Kayakklúbbsins  verður haldinn fimmtudaginn 23. febrúar 2023 í húsnæði Siglingaklúbbsins Þyts Hafnarfirði (það er framkvæmdir í Íþróttamiðstöðinni Laugardal). Fundurinn hefst kl. 20:00.

 

Dagskrá aðalfundar:

 

  1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram.
  3. Skýrslur nefnda lagðar fram.
  4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og útskýrðir.
  5. Umræða um skýrslu stjórnar, nefnda og reikninga.
  6. Reikningar bornir upp til samþykktar.
  7. Lagðar fram tillögur að lagabreytingum og bornar undir atkvæði.
  8. Önnur málefni sem borist hafa til stjórnar lögð fram og borin undir atkvæði.
  9. Kosning formanns og fjögurra meðstjórnenda sem skipta með sér verkum í samræmi við
    9. grein.
  10. Ákvörðun félagsgjalda.
  11. Önnur mál.
  12. Fundargerð.
  13. Fundarslit.

Kosning stjórnar og aðrar atkvæðagreiðslur

Kosningu á aðalfundi skal framkvæma með handauppréttingu en sé þess óskað sérstaklega, skal haldin leynileg atkvæðagreiðsla.

Lögum félagsins verður ekki breytt nema á aðalfundi og þá með 2/3 hlutum atkvæða. Í öðrum kosningum á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti.

Aðalfundur getur með 2/3 atkvæða viðstaddra, tekið fyrir mál utan dagskrár aðalfundar, þó ekki lagabreytingar.

 

Framboð til stjórnar og nefnda:

Félagsmenn sem hafa greitt félagsgjöld hafa rétt til að bjóða sig fram til stjórnar og nefnda á aðalfundi. 
Nánar má lesa um stjórnar- og nefndarfólk á heimasíðunni okkar.

 

Lagabreytingar og önnur málefni  :

Samkvæmt 6. grein laga félagsins þurfa tillögur að lagabreytingum tilkynnast stjórn Kayakklúbbsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund sem væri þá 9. febrúar 2023. Hægt er að senda tölvupóst á kayakklubbur@gmail.com

Stjórn auglýsir lagabreytingar, ef einhverjar eru, á heimasíðu klúbbsins.

F.h. stjórnar

Valgeir Elíasson

Formaður

Öryggismyndavél

Nánar
Valgeir Eliasson
Tilkynningar
janúar 30 2023
Skoðað: 1079
  •  Prentvæn útgáfa 
  • Tölvupóstfang

Þessa dagana er unnið að uppsetningu á öryggismyndavél fyrir utan aðstöðu klúbbsins á Geldinganesi.

Myndavélinni er beint að pallinum og útihurð að félagsaðstöðu.

Ástæða uppsetningar öryggismyndavélar er að gæta eigna klúbbsins og félagsmanna.

Aðgangur að myndefni verður í höndum umsjónarmanns vélarinnar, Sveins Elmars, og formanns húsnæðisnefndar, Indriða. Myndefni verður geymt í 90 daga eins og reglur kveða á um.

Leitað var álits Reykjavíkurborgar sem lóðareiganda og Persónuverndar sem gerðu ekki athugasemdir.

Á hurðina á félagsaðstöðunni er búið að setja upp miða sem fylgdi með vélinni þar sem segir að myndavélaeftirlit sé í gangi. Sett verða upp stærri skilti á næstunni.

 

Valgeir

Fleiri greinar...

  1. Áramótakveðja
  2. Félagróðrar komnir á laugardaga
  3. Breiðafjörður 2022 Akureyjar
  4. Umgengi um kayaka
  5. Gleðilegt sumar
  • Fremst
  • Fyrri
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • Næsta
  • Aftast

Öryggisbæklingar

Öryggisbæklingur Landsbjargar og Kayakklúbbsins
Öryggisbæklingur  British Canoeing

Dagatalið

Tög

  • Klúbburinn
  • Sjókayak
  • Straumkayak
  • Félagsróðrar
  • Brimskíði
  • Kayakhöllinn
  • Sviði
  • Klúbbar
  • SÍL
  • Sit On Top
  • Þú ert hér:  
  • Home
Það er nú verið að skrá þig inn með Facebook aðgangsupplýsingum