Kayakklubburinn ...magnaðir markeipar
  • Forsíða
    • Fréttayfirlit
      • Námskeið
    • Korkurinn
    • Sölusíðan
    • Innskráning
  • Klúbburinn
    • Algengar spurningar
    • Fyrirspurn (email)
    • Til Nýliða
    • Stjórn og nefndir
    • Öryggismál
      • Öryggisstefna félagsróðra
      • Öryggisstefna klúbbferða - sjókayak
      • Erfiðleikastig sjókayakferða
    • Lög Kayakklúbbsins
    • Afslættir félagsmanna
    • Skráning í klúbbinn
    • Róðrarstjórar félagsróðra
    • Skjalasafn
    • Aðstaðan
      • Lykla og aðgengismál Geldinganesi
      • Umgengnireglur aðstöðu- og búnaðar
      • Reglur bátageymslna Kayaklúbbsins í Geldinganesi
  • Dagskrá
    • Ferðadagskrá
    • Keppnisdagskrá
    • Félagsróðrar
    • Sundlaugaræfing
    • Námskeið
  • Keppnir
    • Reykjavíkurbikar
    • Hallarbikarinn
    • Sprettróður
    • 10km keppnin
    • Haustródeo
    • Tungufljótskappróðri
    • Kayakfærni
    • Bessastaðarbikar
    • Hvammsvíkurmaraþon
    • Elliðaárródeó
    • Hálfmaraþon
  • Fróðleikur
    • Sögur
    • Fræðsluefni
    • Vefkrækjur
    • Myndasíða
    • Leiðsögn um ár - kort
    • Ferðaskýrslu kort
    • Slóðir (GPS-Wikiloc)
  • English
    • Club Registration
    • River Guide - map
    • Paddling along the South Coast of Iceland
    • Guidelines for paddling in Iceland (en)
    • Safety-policy for the club´s joint paddling activities

Korkurinn

    • Mýrarnar, laugardaginn 5. júlí...
    • 01 júl 2025 20:48

Fleiri umræður »

Félagróðrar komnir á laugardaga

Nánar
Valgeir Eliasson
Tilkynningar
ágúst 31 2022
Skoðað: 1377
  •  Prentvæn útgáfa 
  • Tölvupóstfang

Í september færast félagsróðrar yfir á laugardaga.

Næsti félagsróður verður 3. september. Mæting kl.9:30, á sjó kl.10

Breiðafjörður 2022 Akureyjar

Nánar
Lárus Guðmundsson
Sögur
júlí 08 2022
Skoðað: 1833
  •  Prentvæn útgáfa 
  • Tölvupóstfang

Föstudag 1Júlí mættu klúbbfélagar á Skarðströnd tilbúnir í útilegu. Veðrið var okkur hliðholt, lítill vindur og þurrt, sem reyndist vera veðrið okkar alla helgina fyrir utan smá skúri.Róðurinn frá Fagradal og út í Akureyjar tók okkur aðeins einn og hálfan tíma og við renndum inn að Bæjarey og röskuðum kvöldmatar tíma ábúenda þeirra Birgis og Lilju sem tóku vel á móti okkur að vanda. Okkar beið slegin og slétt grasflöt þar sem við slógum upp tjöldum eins og á fínasta tjaldstæði og ekki leið á löngu þar til öllum hópnum var boðið i kaffisopa og nýbakaðar kleinur sem þóttu öðrum betri, kvöldið leið því hratt við matartilbúning, spjall og tjaldstúss.

Laugardagurinn var tekin hæfilega snemma i dagróður um Akureyjar þar sem farið var í land Höfn og Klofrifur áður en við rérum norður fyrir Akureyjar og yfir Hrúteyjarröst í Hrúteyjar. Að loknu stoppi í Skarðseyjum og Hrúteyjum rérum við til baka yfir röstina. Á leiðinni var rennt til fiskjar, ekki var um mokveiði að ræða en þó nóg til að einhverjir gætu smakkað fisk i kvöldmatnum, róður dagsins endaði í afslöppuðum og skemmtilegum 20 km.

Um hádegisbil á Sunnudegi var haldið heim á leið með viðkomu i skerjum sunnan við Akureyjar þar sem skarfabyggð er mikil, þar tókum við land áður en við rérum i land og tókum síðasta spottann með landi frá Níp að Fagradal, alls rérum við rúma 40 km í ferðinni.

Alls mættu 20 ræðarar í ferðina, allt félagar sem vel réðu við aðstæður og kunnu vel til verka við útilegu, sem og þær reglur sem gilda þegar farið er um í hóp, td. að fylgjast með félaganum og vera hluti af hópnum á sjó, en ekki síður þegar í land er komið að vinna saman við að koma þunglestuðum bátum upp og niður þannig að álag verði skaplegt fyrir alla.

Ég vil þakka öllum fyrir frábæra samveru, samvinnu og aðstoð á sjó og landi, ekki síst Sigurjóni og Susanne fyrir aðstoð við róðrarstjórn sem er krefjandi verkefni og kallar á fulla athygli allan tímann.

Guðna Páls var sárt saknað en veikindi settu strik i hans reikning.Sérstakar þakkir fá ábúendur Birgir og Lilja.

lg

 Breidafjordur2022

Klúbburinn

Umgengi um kayaka

Nánar
Valgeir Eliasson
Tilkynningar
maí 03 2022
Skoðað: 1617
  •  Prentvæn útgáfa 
  • Tölvupóstfang

Ágætir félagsmenn / English below

Á síðustu dögum hefur verið umræða um notkun á kajökum sem eru í eigu félagsmanna án þeirra leyfis.

Rétt er að árétta að klúbburinn á nokkra kayaka sem félagar geta fengið að láni til að róa frá Geldinganesi. Aðgangur að þessum kajökum er í félagagámi en aðgangur að gámnum er í gegnum hurð sem er á bakvið gáminn sem við göngum inn í búningsaðstöðu.

Ef félagsmönnum langar að prófa aðra tegund af kayak en klúbburinn á þá er sjálfsagt og eðlilegt að spyrja hvort einhver vilji lána viðkomandi. Að taka kayak án leyfis er eðlilega ekki í lagi.

---------------------------------------------------

Dear club members 

In recent days, there has been a discussion about the use of kayaks owned by club members without their permission.

It should be emphasized that the club owns several kayaks, that club members can borrow and row from Geldinganes. Access to these kayaks is in a club container. Access to the kayaks is through a door behind the container that we enter into the changing facilities.

If a club members want to try a different type of kayak then the club owns, it is fine to ask if anyone is willing lend them a kayak. It is strictly prohibited to take a kayak without permission from owner.

 

F.h. stjórnar

Valgeir

Klúbburinn

Fleiri greinar...

  1. Gleðilegt sumar
  2. Friðlýsing Blikastaðarkróar - Leirvogs
  3. Ferðadagskrá 2022
  4. Fyrsti fundur nýrrar stjórnar
  5. Áramótakveðja 2021 frá stjórn
  • Fremst
  • Fyrri
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • Næsta
  • Aftast

Öryggisbæklingar

Öryggisbæklingur Landsbjargar og Kayakklúbbsins
Öryggisbæklingur  British Canoeing

Dagatalið

Tög

  • Klúbburinn
  • Sjókayak
  • Straumkayak
  • Félagsróðrar
  • Brimskíði
  • Kayakhöllinn
  • Sviði
  • Klúbbar
  • SÍL
  • Sit On Top
  • Þú ert hér:  
  • Home
Það er nú verið að skrá þig inn með Facebook aðgangsupplýsingum