Keppni í sjókayakfærni 01.sept

28 ágú 2012 07:02 #31 by maggi
Skolpið er tengt inn á regnvatnið á einni blokkinni :S

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

27 ágú 2012 23:44 #32 by Guðni Páll
Það er saurgerlasýking í sjónum við bryggjuhverfið venga mistaka við byggingu þessara húsa. Og því ekki ráðlegt að vera þarna í sjónum. Þetta var í fréttum áðan.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

27 ágú 2012 23:38 #33 by Gunni
Hvaða fréttir eruð þið að vísa í ? Hr. Google veit bara um eitthvað gamalt þegar ég spyr hann.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

27 ágú 2012 23:05 #34 by Guðni Páll
Jú það er alveg á hreinu. Þetta kemur á versta tíma.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

27 ágú 2012 21:58 #35 by eymi
Þurfum við ekki að finna nýjan stað fyrir keppnina eftir síðustu saurgerlafréttir :)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

27 ágú 2012 12:16 #36 by Orsi
Og ég einnig.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

27 ágú 2012 11:10 #37 by SAS
Mæti

kv

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

26 ágú 2012 22:27 #38 by siggi98
Ég mæti.
Það verður almenni flokurinn þetta árið.
Kv
Sigurjon

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

26 ágú 2012 22:20 - 27 ágú 2012 14:26 #39 by Egill Þ
Keppnisnefnd er að útfæra brautina sem verður notuð í keppninni á laugardag, sjá meðfylgjandi tillögu að braut. Einhverjar breytingar geta enn orðið. Brautin verður afmörkuð með nokkrum baugjum (rauðir hringir) og þurfa keppendur að staðsetja sig með því að flútta milli þeirra.

Það er stórstreymt á laugardaginn og fjara kl. 12:50, sjávarstaða mun því breytast nokkuð á keppnistíma. Stefnt er að því að hefja keppni um kl. 11, en það ræðst af fjölda þátttakenda. Mikilvægt er að þáttakendur tilkynni þátttöku hér á korkinum eigi síðar en föstudaginn 31. ágúst.

Tveir keppendur verða ræstir samtímis í brautinni og hver þáttakandi fær að fara tvær umfrerðir. Ef þáttaka verður góð munu efstu menn (4) í hvorum flokki sem hafa samanlagt besta tímann keppa til úrslita.

Þrautir í úrvalsflokki, valkostur gefinn innan sviga (snúa bát í mismarga hringi):
1 (a+b) Í upphafi er bátur inni í hólfi flotbryggju. Róið er út úr hólfi og inn í aðliggjandi hólf. Síðan bakkað úr hólfi og bakkað aftur í upphafshólf.
2 Hægri velta
3 Svigbraut er farin þrívegis. (i) áfram (ii) afturábak (iii) áfram en einungis leyft að róa á annarri hlið
4 Róið með höndum
5 Synda með bát + sjálfbjörgun „cowboy“
6 Snúa bát í tvo hringi: (i) einungis framáratak (ii) einungis bakáratak
7 Hliðarróður, hægri hlið
8 Fara úr mannopi og upp á skut, snúa búk í heilan hring
9 Róa sitjandi á skut
10 Hliðarróður, vinstri hlið
11 Vinstri velta
12 Fara á hvolf og úr bát + Re-entry
13 Róið að endamarki, þar þarf að standa upp og slá í bolta (Snúa í 3 hringi)

Þrautir í almennum flokki, valkostur gefinn innan sviga (snúa bát í mismarga hringi):
1 (a+b) Í upphafi er bátur inni í hólfi. Róið er út úr hólfi og inn í aðliggjandi hólf. Síðan bakkað úr hólfi og róið aftur í upphafshólf. Að endingu er bakkað úr hólfi og bát snúið ()
2 Velta (Snúa 1 hring)
3 Svigbraut er farin þrívegis. (i) áfram (ii) afturábak (iii) áfram en einungis leyft að róa á annarri hlið ()
4 Róið með höndum ()
5 Snúa bát í einn hring, einungis framáratak ()
6 Snúa bát í einn hring, einungis bakáratak ()
7 Róa sitjandi á skut ()
8 Hliðarróður, hægri hlið ()
9 Hliðarróður, vinstri hlið ()
10 Snúa búk í heilan hring, rass má vera í mannopi (Snúa í 3 hringi)
11 Synda með bát ()
12 Sjálfbjörgun úr sjó, valfrjáls aðferð ()
13 Róið að endamarki. Ekki krafist að standa upp og slá í bolta en það gefur frádráttartíma.

Í úrslitum í úrvalsflokki kann að vera að þrautir verði þyngdar t.d. með því að: (i) krefjast þess að fætur séu ofansjávar í reit 9. (ii) Láta þátttakanda færa hlut úr bakhólfi í framhólf.

kv. Egill
Attachments:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum