Ársskýrsla klúbbsins 2006
Ársskýrsla Kayakklúbbsins er komin á netið á .pdf formi. Skýrslan er undir tenglunum "Klúbburinn - Stjórn".
Ársskýrsla Kayakklúbbsins er komin á netið á .pdf formi. Skýrslan er undir tenglunum "Klúbburinn - Stjórn".
Þá er árshátíð yfirstaðin og helstu úrslit komin í hús. Veitt voru verðlaun fyrir Sjó- og straumkayak fólk ársins. Þessi verðlaun eru veitt þeim einstaklingum sem skarað hafa fram úr í félagsstarfi á árinu. Veitt var viðurkenning fyrir ástundun frá Geldingarnesi. Þetta árið var baráttan ekki hörð og augljóst hver eyðir minstum tíma heima hjá sér að taka til. Einnig var ármaðurinn valinn að vanda. Ármaðurinn eru skammarverðlaun straumkayakfólks og er sá heiður veittur þeim sem átti afglap ársins.
Vertu velkomin(n) á nýju heimasíðu Kayakklúbbsins. Hér kennir ýmissa grasa og ber þar helst að nefna nýtt spjall- og sölusíðukerfi, nýja framsetningu ferðasagna og bara miklu flottara heimasíðu. Við höfum fulla stjórn yfir þessari síðu og því má gera ráð fyrir því að hlutir sem ekki virki verði lagaðir.
Þessi síða er enn í vinnslu og því getur verið að það virki ekki alveg allt á henni eins og er. Við munum eftir fremsta megni reyna að koma henni á fullt flug eins hratt og auðið er. Verið ófeimin við að skoða síðuna spjaldana á milli og gera athugasemdir við það sem betur má fara og ekki gleyma að taka fram hvað síðan er svaka flott