Kayaknámskeið haust 2013
Næstu námskeið verða haldin eftirfarandi helgar:
- 26-27 október,
- 16-17 nóvember,
- 14-15 desember,
Námskeiðin eru haldin í innilauginni í Laugardalslauginni.
Þrennskonar námskeið eru í boði sem eru 2*2 klst.
- Byrjendanámskeið þar sem kennd er umgengni við kayakinn, áratækni, félagabjörgun, áraflot og stuðningsáratök.
- Veltunámskeið, þar sem þátttakendum er kennt að velta kayakinum.
- Áratækni framhald. Farið í öll helstu áratökin sem þarf að kunna til að stjórna kayakinum við allar aðstæður, sömu áratökin sem er kraftist kunnáttu á í BCU 3* og 4* prófunum
Þátttakendur þurfa ekki koma með báta og búnað.
Skráning fer fram hjá Magnúsi í síma 897-3386 eða í tölvupósti til msig@simnet.is