Ferð um helgina og nýr tími á fimmtudagsróðrum
Næst á dagskrá er félagsróður sem nú hefur flust yfir á fimmtudaga. Boðið er upp á splunkunýjan brottfaratíma úr Geldinganesi, kl. 19. Nánar um félagsróðrana má lesa undir Klúbburinn - Til nýliða.
Svo er fyrsta ferð sumarsins að bresta á. Á laugardaginn kemur (8. maí) er boðið upp á hringróður um Hestvatn. Nánar má lesa um þá ferð með hér að neðan.