Hvammsvíkurmaraþon, Haustródeó og lokahóf
Laugardaginn 5. september dregur til tíðinda hjá kayakmönnum því þá verður bæði keppt í Hvammsvíkurmaraþoni og Haustródeói. Um kvöldið verður hið alræmda, en þó árlega, lokahóf og þá fagna kayakmenn uppskeru sumarsins og leggja drög að vetraræfingunum. Íslandsmeistarar verða einnig krýndir um kvöldið. Meira um það síðar.