Frá Gumma J og ferðanefnd:
Þá er loksins komið að ferðini sem allir eru að bíða eftir !
Næstkomandi laugardag þann 16.maí bjóða straumvatnsmenn í hina árlegu ferð okkar í Hvítá með sjóbátamenn, byrjendur og lengra komna. Þessi ferð hefur ávallt verið vinsæl og vel sótt. Menn og konur eru búin að vera dugleg að æfa í laugini í vetur fyrir ferðina. Það er samt engin skylda að vera með veltuna á hreinu, heldur er frekar farið fram á að fólk mæti með góða skapið í massavís enda hittir ferðin að venju á Júróvisjón daginn og er því kærkomin upphitun fyrir kvöldið. Leiðin sem farið er með hópinn er mjög auðveld og á allra færi. Leiðangursstjórar í ferðini eru Gummi, Carlos, Heiða og Anna Lára, en fáir hafa synt jafn mikið í Hvítá og Gummi og Carlos þegar þegar þeir voru að synda sína fyrstu spretti í sportinu. En það var á öðrum stöðum í ánni.
Spjall og ýmis smáatriði er að finna á korkinum okkar hér og meira um ferðina má sjá með því að smella á "Read More"