Hringferð um Quadra Island
Sælt veri fólkið
Mér langaði að deila með ykkur smá ferðasögu frá Kanada.
Ég er í leiðsögunámi í Thompson Rivers University í Bresku Kólembíu í Kanada. Eitt námskeiðið sem ég valdi mér var Sjókayak II þar sem er farið hringferð um eyjuna Quadra sem er austan megin við Vancouver eyjuna. Í heildina var ferðalagið um 100 km, sjö dagar og því sex dagar í tjaldi. Mikið þurfti að hugsa um flóð og fjöru því straumarnir í kring um eyjuna, þegar við vorum þar, fóru upp í 12 hnúta. Því var mjög mikilvægt að hitta í gegn um ákveðna staði á fallaskiptum.
Við vorum 11 saman í hóp 9 nemendur og tveir leiðbeinendur. Sjö eins sæta báta og tvo tveggja sæta.
Ég ætla að renna stuttlega yfir dagana.