Dagsferð á Mýrarnar 28. júní 2014
Veðrið lék við okkur og skartaði náttúran sínu fegursta á þessu fallega róðrarsvæði. Gylfi bóndi í Miðhúsum tók vel á móti okkur og lóðsaði okkur niður í fjöruna, þar sem róðurinn hófst. Rérum við að Kóranesi þar sem tókum nestispásu og héldum síðan að Knarrarnesi og áðum í Niðurnesi sem tengt er Knarranesi á fjöru. Rérum síðan vestur fyrir Knarrarnes og að landi þar sem ferðin endaði.
12 ræðarar mættu í róðurinn, Jónas, Helga, Páll, Marc, Þorsteinn, Þorbergur, Egill, Marta, Guðmundur, Sólveig, Sveinn Axel og Hildur.
Þetta gerði tæplega 18 km.
Þakka ég félögum fyrir frábæran dag og róðrarstjóra (SAS) fyrir vel unnin störf.
Myndir frá: