Hér er ljósmyndaannállinn sem Jónas tók saman, þetta var sýnt á uppskeruhátíðinni og er komið á FB síðu klúbbsins en hér er youtube- útgáfa.
https://www.youtube.com/watch?v=SMft3ZM782s
{videobox}SMft3ZM782s{/videobox}
Hér er ljósmyndaannállinn sem Jónas tók saman, þetta var sýnt á uppskeruhátíðinni og er komið á FB síðu klúbbsins en hér er youtube- útgáfa.
https://www.youtube.com/watch?v=SMft3ZM782s
{videobox}SMft3ZM782s{/videobox}
Það var logn, heiðskírt og sléttur sjór þegar lagt var af stað frá Nauthólsvík í hálfmaraþonkeppni, 30.ágúst 2014. Fimmtán kayakræðarar mættu til keppni, 11 í ferðabátaflokki karla, 2 í keppnisbátaflokki karla og 2 í ferðabátaflokki kvenna.
Keppendur reru flestir léttklæddir og nokkrir fóru úr þurrgöllum skömmu fyrir ræs og reru í ullarfötum eða á stuttermabol. Ölduspár höfðu gert ráð fyrir 1-2 m öldu við Gróttu og það gekk eftir. Hæg og löng úthafsalda brotnaði nærri landi og þurftu ræðarar að sæta lagi til að fara í gegnum hana. Frá Gróttu var mild gola að marki í Geldinganesi.
Róðrarleiðinni var skipt upp í tvo áfanga :
Aðstæður í keppninni voru hagstæðar fyrir hraðskreiðari báta og fyrstu ræðarar voru allir á hraðskreiðum bátum og notuðu vængárar. Róðrarhraði var mun meiri en í fyrri keppni og flestir keppenda bættu tíma sinn. Eymundur Ingimundarson var fyrstur í mark og setti hraðamet á leiðinni og reri á tímanum 2:09:36 og var meðalhraði um 10,2 km/klst. Allir keppendur luku keppni.
Fjölmargir félagar aðstoðuðu við keppnina (Hildur, Gísli H.F., Þóra, Daníel, Jónas, Helga, Perla, …) og sáu þau um: skráningu, tímatöku, öryggismál, aðstoð í stoppi og aðstoð við ræðara í ölduróti við Gróttu. Þeim er þakkað kærlega fyrir aðstoðina. Öryggisbátur fylgdi keppendum og var hann frá Björgunarsveitinni Ársæl, þeim er ber einnig að þakka aðstoðina.
Úrslit voru sem hér segir:
Þann 7 ágúst var haldið Breiðafjörð þar sem við fetum í fótspor Reynis Tómasar sem hefur haft veg og vanda af þessum vinsælu ferðum í áratug eða svo, við nutum góðs af góðu orðspori Reynis og Kayakklúbbsins hvar sem við bárum niður við undirbúning ferðarinnar.
Akureyjar urðu fyrir valinu að þessu sinni en sannarlega eru margar frábærar eyjar sem við hefðum getað heimsótt.
Við unnum heimavinnuna eftir bestu getu, hringdum í eyjaskeggja Birgi og Lilju og fórum i heimsókn og skoðuðum aðstæður og handsöluðum leyfi til dvalarinnar, sem var auðfengið, ásamt því að hitta bændur á Skarðströnd, Höllu Steinólfsdóttur sem er eigandi hluta Akureyja og Sigurð og Steingrím eigendur Hrúteyja.
Allt var klappað og klárt nema veðrið þar höfðum við ekki eins góð sambönd enda var útlitið ekki uppá það besta fyrir helgina, norðaustanátt og vindur i efri mörkum að okkar mati en i ljósi þess að hópurinn sem var skráður til fararinnar var sterkur og vel vanur héldum við okkar striki þó efasemdar raddir innra með okkur létu vissulega á sér kræla.